Unnur Kvótakóngur:)
27.05.2006 19:31:02 / unnuringa

*Sakn*

Jæja byrjaði þennan laugardag snemma, éða hálf 4 í nótt, fékk mér að borða og svo í vinnuna :) ágætt það en dagurinn var mjög lengi að líða :S Fer að fara leggja mig aftur svo að ég verði betur sofin á morgun en í dag.

Var að hugsa mikið í dag á meðan ég var að beita og þá aðalega hvað mig langar að vera með honum Stebba mínum :S:cry: Sakna hans alveg óvenjumikið eitthvað þessa dagana, hélt að ég væri búin að ná tökum á þessu en svo er ekki :S Hitti hann aðeins í gær í 3 tíma eða eitthvað og það var sko ekki  nóg :S Þarf bara að fá faðmlag og finna væntumþykju þessa dagana :S Er eitthvað down :(

En læt þetta duga, ætla að fara skrifa disk fyrir morgundaginn... Svo ég geti hugsað meira ;)

Unnur the down one


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 22:13:27 / unnuringa

ja

Jæja þá er loksins komið að því að gera eitthvað :) kominn tími á að vinna :D verð að nýta þessa síðustu daga í mánuðnum og vinna eins og vitleysingur :S

Annars skrapp í bæinn í dag og tók þátt í fjölskylduhátíð Sjálfstæðisflokksins og fannst mér það bara ágætt, var með nokkrum ungum konum í andlitsmálingu og blása upp blöðrur :) Mjög fínt og endaði síðan daginn á að fara í kjötsúpu hjá teindó :) dottaði aðeins í sófanum á meðan ég beið eftir matnum ;) maður á alltaf að vera heimilislegur er það ekki ;)

En læt þetta gott heita :) Og Stebbi minn ég sakna þin :( vildi að þú gætir komið til mín um helgina :S ég elska þig ástin mín :*

KV Unnur


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 21:13:03 / unnuringa

pirr,pirr

Það er eitt sem hefur farið i pirrurnar á mér þessa dagana og það er:

Af hverju má maður ekki spila fótbolta með sínu eigin heimaliði :S með þeim flokki sem maður ætti í raun að spila með, núna er ég orðin 17 ára gömul og ætti að fá að spila með " stóru " strákunum, en nei það gengur ekki vegna þess að einhverjir menn sem eru ekki einu sinni frá Hrísey hata að spila með stelpum og ráða öllu :S:( Mér finnst þetta asnalegt þar sem ég er fædd í þetta lið :( á að spila með Narfa... Sorglegt að fleygja áhugamálinu sínu svona út um gluggann :(  Maður hefur hlakkað til hver einasta sumars út af æfingum og maður var að spila bolta alveg langt framm eftir kvöldi :S Ennn nei svona er þetta ekki lengur...

Ég fékk að byrja með þeim aðeins í fyrra sumar en gafst svo upp því ég fékk aldrei að spila :S Var búin að horfa á held ég 2 ef ekki 3 leiki og ekki fengið að gera neitt, mörgum þótti þetta asnalegt hvernig ég hætti, en kommon, ég hélt að við ætluðum að vera með til að hafa gaman og prófa eitthvað nýtt, og ég veit það sjálf ég er ekkert léleg í bolta... ég get alveg gert góða hluti bara ef  mér gefst tækifæri til :(

Takið þetta til sín sem eiga það!!!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 20:36:42 / unnuringa

Jæja

Fjúff það er mikið að ég nenni að blogga :P

Það svona helsta er að ég náði öllum prófum nema stæ :P Er byrjuð að vinna, en er í fríi ´núna þar sem við erum búin að beita allt upp, ég og mikki að sigra þetta, beitningavélar dauðans ;)

En í þessu fríi tókst mér að skera mig aðeins í fingurinn :P Var að elda góðan mat handa mér og mínum heittelskaða Stefáni á laugardag og viti menn ég cuttaði í fingurinn ;) Þurfti að fara á slysó og þurfti að sauma saman og þvílíkt blóð maður  :S Og ekki nóg með það, ég var ný búin að skera mig á pizzakassa þegar þetta skeði :) Snillingur ég veit :D Svo er ég búin að ná mér í einhvern flensu djöful :S hef lítið sem ekkert getað sofið, allt stíflað og leiðinlegt... ENNNNNN væl,væl,væl ;)

Núna er eg bara á Akureyri í Sæborginni góðu og get nú alveg sagt að mér leiðist hressilega mikið :S ég sit hérna upp í sófa með lappann og borða rifnar gulrætur frá Sollu Grænu ;) HAHAHA :D Og horfa á OC með öðru auganu :)

vona samt að þetta veður fari að lagast, það er alveg sols að mig vantar lopapeysu ;) Er í lopasokkum og bara kappklædd með annað hvort te eða kaffi bolla, misjafnt eftir skapi, núna er það sítrónute með hunangi veitti ekki af, líður í hálsinum eins og ég sé með hrúðukalla í honum :D HEHE

Svo vorum við hjón að taka þá ákvörðun að sprauta raminn ;) hann verður svakalega flottu :D Stebbi er núna að gera og græja fyrir bíladaga, ahh hlakka svo til :D Það er svo gaman að brasast i þessu með honum :)

Ennn læt þetta duga í bili, ;)

Unnur Inga


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 18:47:22 / unnuringa

Jæja loksins

Það hafðist :) Fyrsta skóla árið mitt í Verkmenntaskólanum á Akureyri er búið :) Það var mjög fljótt að líða skal ég segja ykkur :) Og hefur þetta ár verið alveg æðislegt :) Núna er komin sumarfýlingur í mann  :)

En vil bara segja að Þorri er maðurinn þetta skólaárið, vil þakka þér alveg æðislega fyrir allt skutleríið ;* Það er gott að vita af svona vinum :)

Svo hef ég verið að pæla, að um leið og veður leyfir að nóttu til, að skella okkur saman stór hópur vina, bara þessir gömlu góðu og tjalda einhverstaðar, of rifja upp gamlar og góðar minningar :) Er að hlusta á eyjalögin og maður kemst bara í gírinn :D

Svo er mín búin að ákveða að skella sér til Englands í ágúst :D Ætla að hitta Döggu, Jóa og börn þá :) Og kikka kannski til London og svona gaman :D Ætla að stefna að þessu í sumar :)

En læt þetta duga í bili elskurnar og núna vil ég óksa ykkur gleðilegs sumar ;) því núna er komið sumar :) skólinn búinn :):D


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 15:23:18 / unnuringa

BLOGG!!

Jæja loksins nenni ég þessu :S

Ég er bara núna í prófum og er sem sagt á Akureyri :) Það er svo sem ágætt nema það að ég verð ein heima alla vikuna :( Það er ekkert æðislegt, mér á eftir að leiðst geðveikt :S Það er nú bara sols :S En annars já, er búin að fá út úr einu prófi, íslensku og fékk 8 :D er mjög ánægð með það :) Vona svo að eg nái grunnteikningunni, þá verð ég að ég held bara með einn fall áfanga og þá spyrja margir sig hvað er það og jujú það mun vera stærðfræði :$

Svo á næsta leiti er bara sumarfrí og vinna :D hlakka geðveikt til að fara beita eitthvað af viti og rusta öllum þarna í skúrnum ;) Og fyrir þá sem ekki vita þá verð ég landformaður hjá Pétri :') HAHA mér finnst það snilld :D

En núna er þetta bara að verða gott er eiginlega alveg hætt að nenna að skrifa á þessa síðu en eins og í síðustu tveimur bloggum þá hef ég sagt að ég skrifi meira á http://blog.central.is/laugakambu hef meiri áhuga á því :D Endilega kikka þangað og krakkar kvittiði fyrir komu ykkar bæði a þessari síðu og á laugakambi :)

Yfir og út :)

Unnur lanformaður ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 12:38:00 / unnuringa

Takk allir ;*

Jæja kominn tími á blogg segiði :)

Já það er svo sem margt búið að gerast hjá mér er orðin 17 ára gömul og var afmælisdagurinn í gær :) Og vil ég þakka öllum þeim sem sendu mér afmæliskveðjur og gjafir í tilefni dagsins og Gísli og Katla takk æðislega fyrir matinn :* Gerði svo sem lítið af mér í gær, var mest bara heima og horfa út um gluggan allt að ske niður á höfn :) HEHE en svo pickaði Katla mig upp og var ég með henni ogg Gísla þar til klukkan var orðin 9 :)

Svooo var bara síðasti skóladagurinn að enda hjá mér, núna er bara prófin eftir :D Ahh snilld það :) Er að fara heim í eyju í dag og ætla að mæta í vinnu klukkan 7 :) Og svo verð ég bara að vinna og læra inn á milli um helgina fyrir prófin :) Svo er bílprófið 4. maí :) Vona að ég nái því í fyrsta :$

Annars vil ég bara benda ykkur á að ég er farin að blogga oftar á http://blog.central.is/laugakambur ef þið viljið fylgjast eitthvað með mér og slúðri úr Hríseynni :)

En læt þetta gott heita :)

kv. Unnur Inga


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 21:36:51 / unnuringa

Jámm

Þá er maður kominn í Hríseynna og er að fara beita í fyrramálið :) Það er eitthvað að rætast úr þessu páskafríi :)

Er búin að gera voðalega lítið af mér hérna, við systur ákvaðum í sameiningu eftir matinn og fara út að labba og viti menn við löbbuðum allaleið út að hliði en færðin var nú ekki góð, eitt drullusvað mæli ekkert sérstaklega með þessu :S Skórnir okkar og neðst á buxunum ojj, eins og Andrea orðaði svo skemmtilega við vorum eins og utangarðsmenn :) HEHE

Ennn ég vil benda þeim sem skoða þessa síðu að kíkja á nýja síðu sem ég var að búa til ásamt Pétri :) það er http://blog.central.is/laugakambur þarna gerast hlutirnir :)

Annars er ég búin að vera í alveg glimrandi skapi í dag, búin að hlægja aðeins í dag sko :) bara búin með kvótan í þeim málum :) Leggst í fýlu núna :( Nei,nei það borgar sig ekki :) Vona að morgundagurinn verði svipaður :D Þá verður mellilega svo gaman í skúrnum :)

Ennnn læt þetta duga

Kv.Unnur Inga


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 16:53:44 / unnuringa

Afbragðs hugmynd ég er svo hjálpsamur :)

Jæja loksins er komið páskafrí, var sko alveg kominn tími á frí :) Þetta skólaár alveg að verða búið hjá manni :) Sem er gott, er orðin frekar þreytt á þessu :S

Já skólinn var búinn í dag kl 12:00 :) Stuttur tími í íþróttum :) Þegar það var búið fór ég nú bara og fékk mér að borða svakalega góðan silung :) Hann var geðveikt góður ótrúlegt enn satt, beið svo eftir henni Svanhildi minni, hún kom aðeins seinna en ég og sat ég með henni á meðan hún fékk sér að borða, eftir matinn fórum við svo bara, Raggi sótti okkur á flotta Lettanum sínum og HAHAHA Svanhildur mín þú ert svo mikil dúlla, hún var alveg bara þegar hún kom inn í bílinn.... úúúú mjúk sæti, úúúú hann er flottur að innan og var að dást af þessum bíl þangað til við komum á vistina :) Þessi elska er svo mikið krútt ;* Eftir að við skiluðum Svanhildi á vistina fórum við Raggi að versla og ekki veitti af enda var full nettó karfa sem út og heim :) Sem þýðir að Andrea ætti helst að koma í heimsókn, hún kvartar alltaf undan því að það sé aldrei neitt til hjá mér :') Og Andrea mín loksins keypti ég Kokteilsósu handa þér með pizzunni og samlokunni ;) HHEHE það hefur ekki verið til kokteilsósa leni,lengi hjá mér og hún er alltaf jafn fúl þegar hún sér að ég er ekki enn búin að kaupa sols, þar er enn ein dúllan á ferðinni ;* Elska þig litla systir ;*

Svo var minn heittelskaði Stefán að kaupa sér nýjan bíl það mun vera Dodge Stratus árgerð '95 minnir mig :) Geðveikt flottur og þægilegur bíll :) Ennn hann er nú eitthvað aðeins í ruglinu :P

Núna er maður bara á Ak, ætla heim í eyju á laugardaginn :) Þarf að þvo fötin hans Ragga áður en hann fer á sjóinn :) Honum vantar larfana sína eins og hann kallar það :D En larfarnir eru vinnufötin hans :) HEHE gaman að þessu :) Er núna að græja hamborgarhrygg í mínum æðislega ofni svona eða ekki :D Hann er sko síðan 17 hundruð og súrkál sko :) EHEHE hann vill ekki verða vinur minn, það brennur margt sem fer inn í þenna ofn skal ég segja ykkur, en við ákváðum að láta á þetta reynda, og hafa góðan mat svona einu sinni og ætlum við að bjóða Dóra í mat :D Alltaf gaman að hitta hann :D 

En jæja þetta er nú orðið ágætis blogg svo ég læt þetta duga bara í bili :)

Kv. Unnur Inga

P.S. Elsku Stebbi minn viltu vera svo yndislegur og gefa konunni þinni páskaegg ;) HEHE 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 20:12:01 / unnuringa

Hann á afmæli í dag ;*

Já ætla að tileinka honum Árna bróður þessu bloggi, hann er nefninlega 9 ára í dag, stóri strákurinn minn :* Ég fór út í eyju í afmælisveisluna hans að sjálfsögðu og þvílíkt stuð á fólki þar, Árni að sjálfsögðu í góðu glensi og rosalega hamingjusamur með þetta allt saman enda var þetta frábær veisla út í eitt, voðalega fín veisla sem mamma gerði það var aðeins ein afmælisterta annars var bara ávestir og heit rúlluterta og salöt og ostapinnar, rosalega fínt og létt svo voru svona litlar pizzur sem voru by the way á pitubrauði :)

Hérna er svo kappinn :)

Svona þar sem ég var nú í Hrísey þá stóðst ég ekki freistinguna og ákvað að kikka í heimsókn til Pétur og Mikka og viti menn þessi drengur er gorgeous, alveg frábær náungi þarna á ferð og virkilega skemmtilegur og hress :) Þetta verður snilldar sumar sko :) Hann segist bíða spenntur eftir að beita og ég auðvitað sagði honum að það væri geðveikt stuð :) HEHE spurning um að fara skrifa bloggin mín á ensku svo hann skilji þau ;) hehe en allavegna ætla að hafa hérna smá handa honum :)

Mikki this is to you: I'm really excited about the summer, I can't wait to work alongside you I hope that we will become good friends and will be having lot of fun. And don't be shy, write a comment if you want and i'm always ready to do funny stuff with you :) :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 18:38:23 / unnuringa

Jaríjarí

Jæja komin heim eftir ágætis suðurferð.... síðasta vikan í skólanu núna fram að páskum og verður það sweet, þar sem ég ætla að reyna beita eitthvað með Mikka :D Hehe, var einmitt að skella á Pétur, og segir að þetta sé fínasti drengur og alsaklaus :D Sem er vissulega gott :) Mig er búið að dreyma þennan kauða alla helgina og aldrei er hann eins útlýtandi :) HEHE

En já suðurferðin var afskaplega fín þó helst þessi ferming, það var allsvaðalegt sko kökur og ýmist góðgæti :) þar hitti maður lika mest megnið af mömmu fólki og er það alltaf gaman :) svo var líkað verslað aðeins eins og t.d. þrenna skó :D hehe og svo nokkrar flíkur. Fórum út að borða á Pizza Hut og ekki fór maður svikin um matinn þar út en kannski aftur á móti með manneskjuna sem fór með okkur, það var svekk,þetta er svona fjölskyldu mál :P

Það var gist hjá ömmu og afa og var það svo sem ágætt en frekar leiðinlegt svona til lengdar allt svo þröng og svo reykja þau svo mikið :S En nottla gaman að hitta þau, hef ekkert séð þau eða heyrt síðan um jólin.

Svo er nottla komin apríl og það þíðir að ég verð bráðum 17 ára, árni bróðir á afmæli á miðvikudaginn og einnig vil ég nota tækifærði og óska Gesti Leó Gíslasyni til hamingju með daginn i dag :)

En læt þetta duga i bili

Unnur inga


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 17:56:45 / unnuringa

HAHA :)

Jæja fékk tilkynningu um það frá ökukennaranum mínum í dag að ég fer í verklega prófið 24.apríl :) Það verður sko gaman :$ HEHE er nú ekki viss um velgengi þar :P

Ennnn komin miðvikudagur og alllllveg að koma helgi, þessi vika ætlar að vera lengi að líða það er bara sols :S Hef gert lítið af mér síðan í gær, var bara heima í gærkvöldi með Stefáni mínum og kúrðum við bara upp í sófa og horfa á imbann :) Það var mjög nice ;)

Það er eitt sem ég hef verið að pæla :S Af hverju þurfa alltaf að vera svona leiðinlegir þættir á skjá einum svona seinni part dags :S T.d Doctor Phil alveg hreint mannskemmandi þáttur ætti ekki að sýna þetta, þetta er sko verra en Oprah ég sver það, þarna er sko grátið í hverjum einasta þætti og meira en í Opruh :S Finnst þetta allavegana viriklega leiðinlegur þáttur :S

Svo þetta veður, mér finnst það ekki spennandi :S Verð nú bara að segja eins og er, það er allt í lagi að hafa snjó en jesús minn þegar það er farið að snjóa það mikið að bílarnir á þessu heimili komast ekki í stæðin sín þá þarf að fara gera eitthvað :) Stebbi og Raggi sátu báðir fastir niður í brekkunni í gær :) Stebba tókst samt að losa sig á endanum en Raggi sat alveg pikk :) Enda hann kannski ekki á besta vetrar bílnum, svona gömlum letta og ekki á vetraradekkjum :)

Svo erum við búin að ákveða það að þegar Stebbi er búinn að setja stærri dekk undir bílinn hjá sér og setja brettakannta og gera nýja fjöðrun einhverja einhverstaðar þá ætlum við að fara upp á  Mýrar að leika okkur aðeins :D Það verður örugglega stuð, annars er ég nú enn þá hálf smeik við umferð eftir áreskturinn í sumar :S Sérstaklega núna þar sem bílar renna til og þess háttar :S Er alltaf með hjartað í buxunum í bíl þessa dagana :) En þetta er eitthvað sem ég verð að takast á við mig sjálfa :)

Jesús minn hvað ég hlakka samt til að klára þessa önn í skólanum, ég vil komast að vinna :) Hlakka ekkert smá til sumarsins :) Hef það á tilfinningunni að þetta verði æðislegt sumar og HEYRÐU SIGRÚN MÍN :) HEHE þú lætur mig vita þegar litla krílið ykkar fæðist og hver veit nema ég kikki til ykkar á Húsavík :) hlakka til að sjá krílið :) Þetta fer batnandi núna sambandið á milli okkar þar sem ég er að fara fá bílpróf þá get ég farið hvert á land sem er ;)

Vil einnig óska Svanhildi og fjölskyldu hennar innilega til hamingju en Krístín er ólétt og á að eiga í byrjun Október og hver veit nema Svanhildur fái systkinið sitt í afmælisgjöf :)

En læt þetta gott heita lesendur góðir :)

Bestu kveðjur frá mér :)

Unnur Inga :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 16:21:13 / unnuringa

Jaaa drengur ;)

Jæja var að koma heim úr bóklega bílprófinu og viti menn kjéllan náði því og var það villulaust :D Sko mig :)

Annars hefur lítið á daga mína drifið, vil benda ykkur lesendum góðum á allsvaðalega síðu http://blog.central.is/laugakambur þessi síða er í vinnslu og á hún eftir að verða glæsileg :) Þetta er síða sem ég ákvað að gera með samþykki Péturs og hefur hann einnig sett inn dagbókarfærslu og ætlum við að gera þetta að virkilega skemmtilegri síðu :)

Ég og Andrea vorum að tala um að á næsta ári þá verður haldið besta ættarmót sem hægt er að vera á, það er ættarmótið í Árna afa fjölskyldu þar sem svo margt fólk og þvílík gleði síðast þegar við fórum þá var það haldið í Árnesi eða eitthvað og var það mjög fínt, fórum með ömmu og afa :D Ennn á næsta ári þá ætlum við að fara saman ég og hún einar í bíl og hafa það geðveikt gaman, hún með gítarinn og allagræ ;) Þá verður maður líka orðinn 18 ára gamall pæliði í þessu 8|

En já svo er það suður um helgina, fer með flugi :) gott það, mamma ætlar að fara á fimmtudaginn og ekki má ég við að fá fleiri fjarvistir :P Svo svona verður þetta að vera :) Ekkert nema gott um það að segja þá þarf ég bara að sitja í bíl aðra leiðina :D

Stebbi minn ætlar að vera heima á Ak og vinna í bílnum sínum á meðan ég skelli mér suður :) Svo duglegur þessi elska vinnur oft 7 daga vikunnar ;*

en læt þetta duga í bilinu ;)

Kv. Unnur Inga


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 16:12:17 / unnuringa

Jæja já

Heyriði mig, ég hef verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að stofna nýja síðu undir minni stjórn og mun hún bera nafnið laugakambur :) Pétur hvað segiru um það :) Slá til að hafa endalaust slúður og skemmtileg heit á síðunni ;) Þetta er nauðsynlegt þar sem þýskarinn fer að mæta á svæðið ´það koma eflaust gullkorn upp úr honum :) Annars var þetta bara hugdetta, gaman að halda svona síðu í sumar þar sem maður ætlar að eyða liggur við öllum stundum í skúrnum þá :)

Annars er ég bara mætt á Akureyri og fer svona að fara tía mig í matargerð :)  Enda karlarnir mínir báðir að vinna og eflaust svangir :P HEHE. Er búin að vara læra aðeins fyrir bóklega bílprófið :) Vona svo innilega að ég nái þessu :) En stóra stundin er á þriðjudaginn kl 1500 :) Þetta verður spennandi :)

Ennnn ég ætla ekkert að hafa þetta lengra :)

Kv Unnur Inga 


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 20:37:06 / unnuringa

Jæja

Héðan svo sem lítið að frétta, er mætt í Hríseynna góðu en stoppa stutt þar, ætlaði að beita en þegar ég mæti í skúrinn eru aðeins tveir balar eftir :( Ekki gott það :( Svo ég ætla bara að fara heim til Stebba míns og knúsa hann :P HEHE

Annars já föstudagur í dag og komin helgi það er nú ljúft, þetta skot gengur þessi önn hjá mér, mér finnst eins og ég hafi byrjað í gær :) En svo er það hausverkur dauðans hvað á ég að gera næsta haust :S Ég er svo óákveðin að það er ekkert eðlilegt :S Hata það.

En vil þakka honum Pétri fyrir stórkostlegt comment ;) hehe honum tókst þetta með smá leiðsögn :D Snillingur hérna á ferð og svei mér þá besti yfirmaður sem ég hef haft :D

En ég og Svanhildur vorum að rifja upp Danmerkurferðina góðu í ferjunni í dag og verð að deila einni umræðunni með ykkur :D

Við sem sagt vorum á gangi í miðbæ Kolding sem var svona stór bær rétt hjá sumarhúsinu okkar og vorum við bara að skoða okkur um og þá sjáum við þarna manninn sem hjólaði hringinn um landið heitir hann ekki Eggert eða eitthvað...? Og alltaf þegar Svanhildur sá Íslending eða heyrði réttara sagt íslenskuna þá sagði hún oft frekar hátt hey þarna eru Íslendingar :D Og hún sagði þetta þarna í Kolding og þessi Eggert heyrði það og sagði góðan daginn :D Og svo fórum við að velta fyrir okkur nafninu á honum og þá segi ég " var þetta ekki Eiríkur Fjalar" HAHAHAHA Hvernig er hægt að vera svona vitlaus :D

E vildi bara deila þessu með ykkur :)

Kv. Unnur Inga

Björgvin og Kristján í bátnum þar sem fór að míg rigna á okkur og við vorum bara föst í tækinu og rennblotnuðum :D

Risa pizzan sem við fengum hryllilega stór og stóðum við Svanhildur slefandi á manninn sem gerði hana við vorum svo svangar :D En kauði tók bara vel í það og gerði allskonar kúnstir :)

hérna erum við svo að horfa á kauða gera pizzuna ásamt Kolbrúnu :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5